Hoppa yfir valmynd
Táknmál

Ríkisstjórn

Þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum er birt stefnuyfirlýsing þar sem talin eru upp þau mál sem ríkisstjórnin hyggst vinna að á kjörtímabilinu.

Ríkisstjórnarfundir eru fundir allra ráðherra sem sæti eiga í ríkisstjórn Íslands. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum sem alla jafna eru haldnir tvisvar í viku á starfstíma Alþingis. Á fundunum eru m.a. rædd mikilvæg stjórnarmálefni og stjórnarfrumvörp og stjórnartillögur sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi. Dagskrár ríkisstjórnarfunda eru birtar á vef Stjórnarráðsins.

Forsætisráðherra getur ákveðið, með samþykki ríkisstjórnar, að skipa ráðherranefndir til að fjalla um einstök mál eða málaflokka. Hlutverk ráðherranefnda er að efla samráð og samstarf á milli ráðherra og ráðuneyta þeirra og tryggja samhæfingu ef málefnasvið skarast og til að undirbúa mál til framlagningar í ríkisstjórn.

Ríkisstjórn starfar í samræmi við reglur um starfshætti ríkisstjórnar og siðareglur sem ríkisstjórnin setur sér.

Við upphaf þings er birt þingmálaskrá ríkisstjórnar. Þingmálaskrá er listi yfir þau stjórnarfrumvörp, stjórnartillögur og skýrslur sem ráðherrar hyggjast leggja fyrir Alþingi á komandi þingi.

Ríkisráð er skipað ráðherrum og forseta Íslands sem jafnframt stýrir fundum þess. Í ríkisráði eru lög og aðrar mikilvægar stjórnarráðstafnir bornar upp við forseta til staðfestingar.

Skipan ríkisstjórnar

Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir
Bjarni Benediktsson
utanríkisráðherra
Bjarni Benediktsson
Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson
fjármála- og efnahagsráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra
Matvælaráðherra
Svandís Svavarsdóttir
Guðlaugur Þór Þórðarson
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson
Lilja D. Alfreðsdóttir
menningar- og viðskipta­ráðherra
Lilja D. Alfreðsdóttir
Ásmundur Einar Daðason
mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félags- og vinnumarkaðsráðherra / samstarfsráðherra Norðurlandanna
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra
Willum Þór Þórsson
dómsmálaráðherra
Guðrún Hafsteinsdóttir

Ríkisstjórnir

Þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum er birt stefnuyfirlýsing þar sem talin eru upp þau mál sem ríkisstjórnin hyggst vinna að á kjörtímabilinu.

Ríkisstjórnarfundir eru fundir allra ráðherra sem sæti eiga í ríkisstjórn Íslands. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum sem alla jafna eru haldnir tvisvar í viku á starfstíma Alþingis. Á fundunum eru m.a. rædd mikilvæg stjórnarmálefni og stjórnarfrumvörp og stjórnartillögur sem ráðherrar hyggjast leggja fram á Alþingi. Dagskrár ríkisstjórnarfunda eru birtar hér á vef Stjórnarráðsins.

Forsætisráðherra getur ákveðið, með samþykki ríkisstjórnar, að skipa ráðherranefndir til að fjalla um einstök mál eða málaflokka. Hlutverk ráðherranefnda er að efla samráð og samstarf á milli ráðherra og ráðuneyta þeirra og tryggja samhæfingu ef málefnasvið skarast og til að undirbúa mál til framlagningar í ríkisstjórn.

Ríkisstjórn starfar í samræmi við reglur um starfshætti ríkisstjórnar og siðareglur sem ríkisstjórnin setur sér.

Við upphaf þings er birt þingmálaskrá ríkisstjórnar. Þingmálaskrá er listi yfir þau stjórnarfrumvörp, stjórnartillögur og skýrslur sem ráðherrar hyggjast leggja fyrir Alþingi á komandi þingi.

Ríkisráð er skipað ráðherrum og forseta Íslands sem jafnframt stýrir fundum þess. Í ríkisráði eru lög og aðrar mikilvægar stjórnarráðstafnir bornar upp við forseta til staðfestingar.


Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum