Hoppa yfir valmynd

7. Samstæðuyfirlit A-hluta í heild

Í þessum kafla er sett fram samstæðuyfirlit fyrir A-hluta ríkissjóðs í heild til samræmis við framsetningu opinberra fjármála hjá Hagstofu Íslands. Með A-hluta í heild er átt við A1-hluta ríkissjóðs, sbr. 1. gr. fjárlaga og umfjöllun í köflum 3–5 í þessari greinargerð, ásamt A2- og A3-hluta ríkissjóðs sem fjallað er um í 6. kafla. Flokkun á starfsemi ríkisins er skv. 50. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.

A-hluta samstæða

Samstæðuyfirlit A-hluta í heild gerir grein fyrir uppgjöri allra aðila í A-hluta að teknu tilliti til innbyrðis viðskipta þeirra á milli. Til innbyrðis viðskipta teljast m.a. framlög úr A1-hluta til reksturs aðila í A2- og A3-hluta. Slík framlög eru skráð sem gjöld hjá A1-hluta en tekjur hjá A2- og A3-hluta. Til innbyrðis viðskipta teljast einnig vaxtagreiðslur til A1-hluta vegna veittra lána til aðila í A2- og A3-hluta. Þegar leiðrétt er fyrir innbyrðis viðskiptum er tekju- og gjaldahlið samstæðunnar lækkuð í jöfnum hlutum og er leiðréttingin því hlutlaus gagnvart afkomunni. Umfang innbyrðis viðskipta þessara aðila er áætlað um 73 ma.kr. árið 2024.

Umfang innbyrðis viðskipta þessara aðila er áætlað um 73 ma.kr. árið 2024

Sækja töflu 7-1

Rekstraryfirlit A-hluta í heild fyrir árin 2021–2024 er að finna í meðfylgjandi töflu. Vakin er athygli á því að við vinnslu samstæðuyfirlits A-hluta í heild fyrir árið 2024 og afkomuhorfur ársins 2023 hafa innbyrðis viðskipti verið áætluð annars vegar með upplýsingum um framlög til rekstrar úr ríkissjóði úr samstæðureikningi A2- og A3-hluta sem sett er fram í kafla 6 og hins vegar með áætlun um önnur innbyrðis viðskipti miðað við sögulega þróun.

Rekstraryfirlit A-hluta í heild fyrir árin 2021–2024

Sækja töflu 7-2

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum